03. apríl 2013
Frú Vigdís Finnbogadóttir afhenti Þórarni Eldjárn í gær bókmenntaverðlaun IBBY á Íslandi, Sögustein.
Verðlaunin eru 500.000 krónur, auk verðlaunagrips til eignar, en þau eru veitt rithöfundi, myndlistarmanni eða þýðanda sem með höfundarverki sínu hefur auðgað íslenskar barnabókmenntir.
Var það einróma álit valnefndar, sem skipuð var Brynju Baldursdóttur, íslenskufræðingi og kennara, Dagnýju Kristjánsdóttur, prófessor og Ragnheiði Gestsdóttur, rithöfundi og myndlistarmanni, að Þórarinn Eldjárn