English
Fréttir og auglýsingar

04. mars 2013

Miðstöð íslenskra bókmennta auglýsir eftir umsóknum um útgáfu- og þýðingastyrki. Umsóknarfrestur er til og með 22. mars næstkomandi. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Miðstöðvar íslenskra bókmennta, www.islit.is Hlutverk Miðstöðvar íslenskra bókmennta er að standa að kynningu íslenskra bókmennta hér á landi og erlendis, stuðla að útbreiðslu þeirra og efla bókmenningu á Íslandi. Miðstöð íslenskra bókmennta veitir einnig styrki til útgáfu

04. mars 2013

Steinunn Sigurðardóttir talar um nýjustu skáldsögur sínar, Jójó og Fyrir Lísu, í stofu 105 á Háskólatorgi 7. mars kl. 12:00. Um leið og Steinunn Sigurðardóttir fer yfir sköpunarsögu skáldsaganna tveggja, kemur hún einnig inn á tengslin við íslenskan veruleika og nýlegar afhjúpanir um kynferðisbrot, gegn drengjum sérstaklega. Hvaða erindi eiga tveir Berlínarbúar, þýskur geislalæknir og franskur róni, sem aðalpersónur í íslenska skáldsögu? Hvernig datt Steinunni Sigurðardóttur í hug -

25. febrúar 2013

Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og myndlistarmaður lést laugardaginn 23. febrúar í borginni Antwerpen í Belgíu. Þorvaldur fæddist hinn 7. nóvember árið 1960 á Akureyri. Hann starfaði jöfnum höndum sem rithöfundur og myndlistarmaður. Þekktustu bækur Þorvalds eru barnabókin Skilaboðaskjóðan og sögurnar um Blíðfinn en þær hafa komið út í þýðingum, meðal annars á Ítalíu, Spáni, Grikklandi, Þýskalandi og annar staðar á Norðurlöndunum. Þá skrifaði hann vel á annan tug sviðsverka auk fjölda

25. febrúar 2013

Fjöruverðlaunin 2013 voru afhent í sjöunda sinn við hátíðlega athöfn í Iðnó á konudaginn, sunnudaginn 24. febrúar, kl. 11. Veitt voru verðlaun í þremur flokkum, Randalín og Mundi eftir Þórdísi Gísladóttir var valin besta barna -og unglingabókin. Í flokki fræðibóka var valin Sagan af Klaustrinu á Skroðu eftir Steinunni Kristjánsdóttur og í flokki fagurbókmennta var Auður Jónsdóttir verðlaunuð fyrir bók sína Ósjálfrátt. Heiðursgestur hátíðarinnar var frú Vigdís Finnbogadóttir og flutti

20. febrúar 2013

The Danish Centre for Writers and Translators are very pleased to announce H.A.L.D. 2013 [Housing Authors & Literature, Denmark ], the fifth International Summer Residence Program for foreign and Danish writers at the old Hald Manor House outside the city of Viborg in the very heart of Denmark . The call for applications has now been published at the English part of our web page: http://www.haldhovedgaard.dk/call . Here you will also find

20. febrúar 2013

Sunnudaginn 24. febrúar næstkomandi verða Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, afhent í sjöunda sinn. Fjöruverðlaununum, sem hafa skapað sér sess á síðustu árum, er meðal annars ætlað að vekja athygli á mikilvægu framlagi kvenna til íslenskra bókmennta. Boðið verður upp á lífleg tónlistaratriði, kaffi og léttar veitingar. Hátíðin fer fram í Iðnó og hefst dagskráin klukkan 11.00. Heiðursgestur hátíðarinnar er frú Vigdís Finnbogadóttir og flytur hún ávarp um félagsskap fyrrverandi þjóðarleiðtoga. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra

12. febrúar 2013

Nýstofnuð Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs verða veitt í fyrsta sinn nú í haust á Norðurlandaráðsþingi í Osló. Skrifstofa nýju verðlaunanna er í Norræna húsinu í Reykjavík. Við sama tilefni hefur Norræna ráðherranefndin ákveðið að stórauka framlög til verkefna um norrænar barna- og unglingabókmenntir og mun Norræna húsið koma að umsýslu þeirra verkefna ásamt skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn. Norræna húsið í Reykjavík býður öllum fulltrúum úr dómnefnd nýju verðlaunanna til fundar 21.-22.

08. febrúar 2013

Skáldsagan Illska eftir Eirík Örn Norðdahl og ævisagan Pater Jón Sveinsson – Nonni eftir Gunnar F. Guðmundsson hlutu Íslensku bókmenntaverðlaunin í ár. Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin á Bessastöðum í gær. Skáldsagan Illska eftir Eirík Örn Norðdahl hlaut verðlaunin í flokki fagurbókmennta, en Mál og menning geftur bókina út. Í flokki fræðirita og bóka almenns efnis hlaut Gunnar F. Guðmundsson sagnfræðingur verðlaunin fyrir bókina Pater Jón Sveinsson – Nonni, sem

06. febrúar 2013

Kristín Steinsdóttir talar um bók sína Ljósu í fyrirlestraröðinni Hvernig verður bók til? fimmtudaginn 7. febrúar kl. 12 í stofu HT105 á Háskólatorgi. Ljósa fjallar um geðsjúkdóma og meðferð þeirra fyrr á tíð. Bókin vakti mikla athygli þegar hún kom út árið 2010 og hreppti bæði Menningarverðlaun DV og Fjöruverðlaunin. Fyrirlesturinn er á vegum ritlistar og Bókmennta- og listfræðastofnunar Háskóla Íslands. Allir velkomnir.

06. febrúar 2013

Í gær, á alþjóðlega netöryggisdeginum, hlaut Selma Hrönn Maríudóttir, höfundur Grallarasagna, verðlaun í samkeppni um besta barnaefnið á Netinu. Í umsögn dómnefndar um Grallarasögur segir m.a., að verkefnið sé heildstætt með margvíslega notkunarmöguleika og mikla þróunarmöguleika í margar áttir. Það sé skemmtilegt, fræðandi og krefjandi og tali beint til aldursflokksins sem það sé hugsað fyrir. Hönnun og myndefni sé í stíl við innihaldið, það sé til fyrirmyndar að bakland efnisins sé skýrt

Fyrri síða
Næsta síða


Rithöfundasambandið | Gunnarshúsi | Dyngjuvegi 8 | 104 Reykjavik | s: 568 3190 | fax: 568 3192  |rsi hjá rsi.is  | opið 10.00 - 14.00