30. janúar 2013
Hagþenkir , félag höfunda fræðirita og kennslugagna, hefur tilkynnt hvaða tíu höfundar eru tilnefndir til Viðurkenningar Hagþenkis 2012. Verðlaunaupphæðin er kr. 1.000.000 og tilkynnt verður hver hlýtur viðurkenninguna í mars, við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni.
Viðurkenningaráð Hagþenkis er skipað fimm félagsmönnum af ólíkum fræðasviðum, sem hefur fundað síðan um miðjan október og kynnt sér útgáfu ársins 2012. Í ráðinu sitja: Ólafur K. Nielsen náttúrufræðingur og formaður ráðsins, Auður Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur, Birgir Hermannsson