Sigríður Víðis Jónsdóttir hlaut í gær viðurkenningu Hagþenkis fyrir bók sína, Ríkisfang: ekkert. Bókin er fyrsta bók höfundar, og fjallar um flótta átta palestínskra kvenna frá Írak til Akraness. Viðurkenningin er veitt árlega fyrir rit sem miðlar fræðilegu efni á aðgengilegan hátt til almennings.