Reykjavík 27. mars 2012
Höfundasmiðja Félags leikskálda og handritshöfunda
Félag leikskálda og handritshöfunda stendur fyrir höfundasmiðju dagana 21. maí – 1. júní næstkomandi. Smiðjunni verður síðan fram haldið í eina viku í haust.
Auglýst er eftir höfundum með verk í smíðum sem vildu ganga í smiðjuna og vinna með skapandi hópi annarra höfunda, leikara, leikstjóra og dramatúrga í tvær vikur.
Fyrirkomulag
Fyrirkomulag smiðjunnar verður með þeim hætti að unnið verður með verk höfundarins í leiksmiðju með leikurum og leikstjóra þar sem möguleikar þess eru kannaðir í þaula og reynt á þanþol þess. Auk þessa fara fram umræðufundir um hvert verk þar sem allir þátttakendur smiðjunnar leggja sitt af mörkum, höfundar fá einstaklingssamtal um verk sitt og framvindu þessu við dramatúrg/leikstjóra, haldnir verða 1-2 fyrirlestrar um leikritun. Smiðjan er lokuð og ekki verður um neins konar opinberan flutning á verkum höfundanna að ræða í lok hennar.
Hver höfundur skuldbindur sig til að vinna í smiðjunni allt að 2 vikur í vor og 1 viku í haust. Ætlast er til að höfundar nýti tímann í sumar til áframhaldandi vinnu við verk sitt útfrá þeim hugmyndum sem kviknað hafa við starfið í smiðjunni í maí.
Allir þátttakendur höfundasmiðjunnar fá greidd laun fyrir tímann sem varið er í smiðjunni og er miðað við starfslaun listamanna 2012.
Þjóðleikhúsið leggur höfundasmiðjunni til húsnæði og fer öll starfsemi smiðjunnar fram í Dómshúsinu við Lindargötu dagana 23. maí – 1. júni frá kl. 10 – 16. Vika í haust verður ákveðin síðar.
Umsókn
Senda skal umsókn á netfangið havar58@gmail.com eða í pósti á Hávar Sigurjónsson, Brekkubæ 15, 110 R. Umsókn þarf að berast ekki síðar en mánudaginn 23. apríl 2012.
Með umsókn höfundar skal fylgja handrit (drög) að verki í smiðum ásamt lýsingu á því hvert höfundur hyggst stefna með það. Ekki er gert ráð fyrir að verk séu endilega langt komin en nægilega þó til að hægt sé að hefja vinnu í smiðjunni við það strax. Ekki er tekið við verkum sem hafa áður verið flutt opinberlega í sviðsetningum, leiklestrum eða kynningum. Endanlegur þátttökulisti höfunda verður kynntur ekki síðar en föstudaginn 4. maí.
Faglega umsjón með höfundasmiðjunni hefur Rúnar Guðbrandsson leikstjóri og dramatúrg og framkvæmdastjóri fyrir hönd Félags leikskálda og handritshöfunda er Hávar Sigurjónsson.
Höfundasmiðjan er styrkt af Menningarmálaráðuneytinu og haldin í samstarfi við Þjóðleikhúsið.