Kristín Marja Baldursdóttir mun gegna stöðu leikskálds Borgarleikhússins veturinn 2012-2013 en alls voru 38 sem sóttu um starfið. Tilkynnt var um þetta við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu í hádeginu. Áður hafa tvö leikskáld gegnt stöðunni, þau Auður Jónsdóttir og Jón Gnarr.
Leikrit Auðar bíður uppsetningar en leikgerð á skáldsögu hennar Fólkið í kjallaranum var sett upp á síðasta leikári. Jón Gnarr skrifaði leikritið Hótel Volkswagen áður en hann hvarf frá störfum til að taka við embætti borgarstjóra Reykjavíkur en verkið var frumsýnt fyrir skömmu.
Einnig var greint frá því hvaða þrjú ungu leikskáld hafa verið valin til að þróa hugmyndir sínar að stuttum leikverkum sem sviðsett verða í Borgarleikhúsinu næsta vetur. Það voru þau Kristín Eiríksdóttir, Salka Guðmundsdóttir og Tyrfingur Tyrfingsson en fyrr í vetur voru þau ásamt þremur öðrum leikskáldum ráðin til að útfæra hugmyndir sínar að leikverkum úr okkar nánasta umhverfi, um íslenskt líf og íslenskan samtíma. Nú liggur hinsvegar fyrir að þau hafa verið valin til frekari þróunar og uppsetningar á næsta leikári en gert er ráð fyrir að verkin þrjú verði leikin á einu kvöldi.
Fyrir skömmu var Jón Atli Jónasson ráðinn til starfa við Borgarleikhúsið í eitt ár. Hann mun semja leikrit sem sviðsett verður á leikárinu 2013-14 auk þess sem hann mun liðsinna yngri og óreyndari skáldum sem vinna fyrir leikhúsið.