English
Fréttir og auglýsingar

13. apríl 2012

Frá Hjálparsveit skálda - Alvara málsins - bókaþjóð í ólestri

Á haustdögum bárust uggvænleg tíðindi af hnignandi lestrargetu ungmenna. Rannsóknir sýndu til dæmis að allt að fjórðungur fimmtán ára drengja eiga erfitt með að skilja skólabækurnar. Í kjölfarið hittust fjórir rithöfundar í gömlu vara-rafstöðinni í Elliðaárdal og sammæltust um að fá fleiri til liðs við sig og stofna samstarfshóp. Margir rithöfundar vildu ólmir og uppvægir taka þátt og hittist samstarfshópurinn til skrafs og ráðagerða nokkrum sinnum fyrir áramót. Nokkrar umræður urðu um nafn á hópinn og virðist niðurstaðan í seinni tíð vera sú að kalla hann Hjálparsveit skálda. Úr varð átaksverkefnið Alvara málsins – bókaþjóð í ólestri. Hópurinn stóð í upphafi árs fyrir ráðstefnu í Norræna húsinu með stuðningi frá RSÍ, Reykjavík- bókmenntaborg, menntamálaráðuneyti, Norræna húsi og háskólasamfélaginu.

Húsfyllir var á ráðstefnunni og mikil stemmning og ljóst að margir deila þessum áhyggjum af bóklestri og stöðu tungumáls. Hún vakti talsverða athygli í fjölmiðlum og fóru meðlimir hópsins í fjölmörg viðtöl og skrifuðu greinar til að vekja athygli á málstaðnum. Þá var stofnuð fésbókar-síða í þágu átaksins sem enn er virk. Einnig var fyrir tilstuðlan Hjálparsveitar skálda frumsýnt myndband í Kastljósi með rapparanum MC-Gauta . Rapparinn flutti þar texta í samstarfi við Hallgrím Helgason sem benti á gildi þess að lesa bækur. Má finna lag og vídeó sem gert var af því tilefni á vefslóðinni: http://www.youtube.com/watch?v=s87Hvz5HblI

Um er að ræða opið grasrótarstarf til að vekja athygli á vægi bóklesturs með tilliti til samfélagsþroska.  Meðal þeirra rithöfunda sem komu að hjálparsveit skálda í vetur voru Sindri Freysson, Áslaug Jónsdóttir, Pétur Gunnarsson, Sigrún Eldjárn, Andri Snær Magnason, Börkur Gunnarsson, Eva María Jónsdóttir, Kristín Helga Gunnarsdóttir, Brynhildur Þórarinsdóttir, Margrét Örnólfsdóttir, Hallgrímur Helgason, Þórarinn Eldjárn, Þorgrímur Þráinsson og fleiri og vonandi eflist sveitin enn frekar þegar fram líða stundir.

Tilgangur með átaksverkefninu Alvöru málsins – bókaþjóð í ólestri er að vekja sem flesta um gjörvallt samfélag til vitundar um gildi og vægi bókarinnar í þroskaferli manneskju.  Það er ósk hópsins að snjóboltinn stækki og að sem flestir sjái sér fært að koma að þessu langtímaverkefni með skapandi hugmyndir og aðgerðir. Hjálparsveit skálda sér til dæmis fyrir sér átak á landsvísu með aðkomu skóla og bókasafna, margvíslegar áminningar um gildi lestrar í fjölmiðlum og í opinberu rými, ýmsar uppákomur, upplestra og textagerð á opinberum vettvangi – helst mætti skáldskapur vera hvarvetna í umhverfinu fyrir alla að njóta, bæði á veggjum og göngustígum. Einnig verður að virkja vel heimilin í landinu og unga fólkið sem þarf að lesa og skrifa í þágu bókaþjóðarinnar. Draumurinn er sá að staða bókar og lestrar verði svo sterk að Hjálparsveit skálda geti lagt sig niður með góðri samvisku.

Til baka


Rithöfundasambandið | Gunnarshúsi | Dyngjuvegi 8 | 104 Reykjavik | s: 568 3190 | fax: 568 3192  |rsi hjá rsi.is  | opið 10.00 - 14.00