English
Fréttir og auglýsingar

26. apríl 2012

Ráðgera ný barna- og unglingabókaverðlaun.

Norrænu menningarmálaráðherrarnir ráðgera ný verðlaun fyrir barna- og unglingabókmenntir. Ákvörðun þess efnis var tekin á fundi ráðherranna í Ósló.

Ráðherrarnir munu nú hefja viðræður við Norðurlandaráð um hvernig hægt er að stofna til norrænna verðlauna fyrir barna- og unglingabókmenntir.

Menningarmálaráðherrarnir vilja efla barna- og ungmennamenningu á Norðurlöndum. Þess vegna er pólitísk samstaða meðal ráðherranna fimm um að stofna ný verðlaun fyrir barna- og unglingabókmenntir:

„Á Norðurlöndum er góð og löng hefð fyrir gæða barna- og unglingabókmenntum Því er mjög jákvætt að norræn starfssystkin mín og ég höfum náð samkomulagi um að standa fyrir stofnun nýrra verðlauna fyrir þessa gerð bókmennta, sem er svo öflug”, segir Anniken Huitfeldt menningarmálaráðherra Noregs.

„Norræn barnabókaverðlaun munu ásamt fjölmörgum öðrum verkefnum lyfta menningu barna og ungmenna og gera hana sýnilega. Við höfum séð að önnur norræn menningarverðlaun eiga þátt í að vekja athygli á menningunni jafnt á Norðurlöndum og alþjóðavettvangi, og það verðum við að nýta okkur á sviði barna og ungmennamenningar”, segir norski menningarmálaráðherrann.

Menningamálaráðherrarnir hlakka til viðræðnanna við Norðurlandaráð.

Anniken Huitfeldt og starfssystkin hennar funda í Ósló í þessari viku. Á fundi sínum samþykktu ráðherrarnir einnig að styðja verkefni þar sem skotið er skjólshúsi yfir ofsótta rithöfunda í völdum borgum á Norðurlöndum:

„Þetta verkefni er frábært framtak sveitarfélaga Við veitum þeim borgum sem taka þátt í þessu mikilvæga verkefni fyrir tjáningarfrelsið okkar fulla stuðning. Það ber vott um áhuga á réttaröryggi, samstöðu og lifandi lýðræði”, segir Anniken Huitfeldt.

Á dagskrá menningarmálaráðherranna er einnig stafvæðing menningararfs norrænu ríkjanna. Ráðherrarnir ítrekuðu mikilvægi þess að efni úr skjalasöfnum landanna, söfnum og bókasöfnum verði gert aðgengilegt eins stórum hópi almennings sem mögulegt er.

Til baka


Rithöfundasambandið | Gunnarshúsi | Dyngjuvegi 8 | 104 Reykjavik | s: 568 3190 | fax: 568 3192  |rsi hjá rsi.is  | opið 10.00 - 14.00