English
Fréttir og auglýsingar

08. maí 2012

Fjörutíu skólabókasöfn fá styrki

Fjörutíu skólabókasöfn fá styrki

Bókasöfn í grunnskólum um allt land styrkt til bókakaupa

 

 

Úthlutun úr Skólasafnasjóði miðvikudaginn 9. maí

Miðvikudaginn 9. maí kl. 10.30 verður úthlutað styrkjum til 40 skólabókasafna um allt land í Arion banka, Borgartúni 19. Styrkveitingin er hluti af verkefninu „Ávísun á lestur“ sem stendur frá 23. apríl til 14. maí. „Ávísun á lestur“ er dreift til allra heimila á landinu í Viku bókarinnar og nýtist ávísunin sem þúsund króna afsláttur af bókakaupum. Í hvert sinn sem „Ávísun á lestur“ er notuð renna 100 krónur í Skólasafnasjóð. Vonir standa til að um ein milljón króna safnist á þennan hátt í sjóðinn. Arion banki leggur nú eina milljón króna í sjóðinn til viðbótar.

 

Um Skólasafnasjóð

Árið 2010 stofnaði Félag íslenskra bókaútgefenda Skólasafnasjóð í því skyni að vekja athygli á veikri stöðu skólabókasafna í kjölfar efnahagsþrenginganna. Sjóðurinn veitir táknræna styrki til safnanna til að sýna að jafnvel lágar fjárhæðir bæta úr brýnni þörf. Markmiðið er að sem flestir séu meðvitaðir um að bókasöfn grunnskólanna eru hornsteinn lestrarhvatningar íslenskra barna.

 

Áhyggjur af læsi íslenskra barna

Mikil umræða hefur farið fram á undanförnum árum um lestrarfærni íslenskra grunnskólanemenda. Niðurstöður úr jafnt alþjóðlegum rannsóknum (PISA og PIRLS) sem innlendum benda til þess að brýnt sé að auka lestur íslenskra barna. Læsi er ein af sex grunnstoðum íslenkrar menntastefnu og viðurkennt er að læsi sé grundvallarfærni, forsenda fyrir að nemendur nái tökum á öðrum bóknámsgreinum. Vitað er að eina svarið við lítilli lestrarfærni er að lesa meira. Aðgengi að áhugaverðu lesefni á móðurmálinu skiptir þar höfuðmáli.

 

Skólabókasöfn eru hornsteinn lestrarhvatningar

Mikilvægi skólabókasafna hefur aukist á undanförnum áratugum. Þau gegna fjölþættu hlutverki í skólastarfinu, ekki síst til að kenna nemendum upplýsingaleit og upplýsingalæsi. Hitt meginhlutverk þeirra er að vera nemendum til hvatningar, leiðbeiningar og örvunar í að lesa. Augljóst er að þeim mun fjölbreyttari sem safnkosturinn er, þeim mun meiri líkur eru til þess að börn beri sig eftir bókum. Ákaflega mikilvægt er að allar nýjar bækur rati inn í söfnin og að safnkostinum sé haldið við.

 

Stutt við bakið á skólabókasöfnum

Efnahagsþrengingar undanfarinna ára hafa því miður komið illa við bókasöfn grunnskólanna. Í rannsókn Brynhildar Þórarinsdóttur, dósents við Háskólann á Akureyri, sem kynnt var á tólftu Þjóðarspegilsráðstefnunni í nóvember 2011, kemur þetta skýrt fram. Erfið fjárhagsstaða skóla og sveitarfélaga hefur bitnað á bókakaupum safnanna og í sumum söfnum var á tímabili alfarið hætt að kaupa bækur. Það er ekki hlutverk Skólasafnasjóðs að ráða bót á þessum vanda, en mikilvægt er að um leið og vakin er athygli á að skólabókasöfn eru mikilvæg stoð lestrarhvatningar sé þeim veittur táknrænn stuðningur.

 

Bókakaupendur velja „sín“ söfn

Í hvert sinn sem bók er keypt fyrir „Ávísun á lestur“ gefst bókakaupendum færi á að vekja athygli á „sínum“ skóla og skólabókasafni hans. Þá er nafn skólans skrifað í sérstakan reit á ávísuninni. Á grundvelli þessara tillagna er síðan gerður listi yfir þau skólabókasöfn sem koma til greina við úthlutun úr Skólasafnasjóði. Framlag Arion banka til sjóðsins, ein milljón króna, rennur til 40 skóla víðsvegar um landið. Úthlutað verður að nýju úr sjóðnum eftir að gildistími „Ávísunar á lestur“ rennur út 14. maí. Vonir standa til að alls verði úthlutað tveimur milljónum króna úr Skólasafnasjóði á árinu 2012.

 

Skólarnir 40 sem nú fá úthlutað úr Skólasafnasjóði

Álftamýrarskóli, Reykjavík

Ártúnsskóli, Reykjavík

Áslandsskóli, Hafnarfjörður

Borgaskóli, Reykjavík

Breiðagerðisskóli, Reykjavík

Breiðholtsskóli, Reykjavík

Egilsstaðaskóli, Fljótsdalshéraði

Engjaskóli – Vættaskóli, Reykjavík

Fellaskóli, Reykjavík

Flúðaskóli, Hrunamannahreppi

Fossvogsskóli, Reykjavík

Grundaskóli, Akranesi

Grunnskóli Bláskógarbyggðar, Reykholti

Grunnskóli Vesturbyggðar, Patreksfjörður, Bíldudalur

Grunnskólinn á Eskifirði, Fjarðabyggð

Grunnskólinn á Stöðvarfirði, Fjarðabyggð

Grunnskólinn Bolungarvík

Grunnskólinn Breiðdalsvík, Breiðdalshreppi

Grunskólinn Hveragerði

Hamraskóli, Reykjavík

Hlíðaskóli, Reykjavík

Holtaskóli Keflavík, Reykjanessbær

Hólabrekkuskóli, Reykjavík

Húsaskóli, Reykjavík

Hvolskóli, Hvolsvöllur, Rangárþing eystra

Ingunnarskóli, Reykjavík

Kársnesskóli, Kópavogur

Korpuskóli, Reykjavík

Kópavogsskóli, Kópavogi

Myllubakkaskóli Keflavík, Reykjanessbær

Oddeyrarskóli, Akureyri

Selásskóli, Reykjavík

Seljaskóli, Reykjavík

Smáraskólim Kópavogi

Snælandsskóli, Kópavogi

Stóru-Vogaskóli, Vogum

Vallaskóli, Selfossi, Árbæ

Varmahlíðaskóli, Skagafirði

Waldorfskólinn

Öldutúnsskóli, Hafnarfirði

Til baka


Rithöfundasambandið | Gunnarshúsi | Dyngjuvegi 8 | 104 Reykjavik | s: 568 3190 | fax: 568 3192  |rsi hjá rsi.is  | opið 10.00 - 14.00