10. maí 2012
Jón Kalman er tilnefndur til verðlauna sem kennd eru við rithöfundinn Gregor von Rezzori (1914-1998), Premio Gregor von Rezzori. Þau eru veitt árlega skáldsögu sem þýdd hefur verið á ítölsku, til þess að opna auga ítalskra lesenda fyrir erlendum litteratúr.
Þetta verður í fimmta sinn sem verðlaunin verða veitt, við virðulega athöfn í hinni dásamlega fögru borg, Flórens.
Þýðandi Jóns er Silvia Cosimini.
Nánar um verðlaunin: