Gestaíbúð er á neðri hæð húss skáldsins frá Fagraskógi að Bjarkarstíg 6, Akureyri. Íbúðin er ætluð rithöfundum og fræðimönnum til afnota í lengri eða skemmri tíma gegn vægu gjaldi, hámark einn mánuð í senn. Í íbúðinni eru: svefnherbergi, stofa, skrifstofuherbergi, eldhús og baðherbergi. Allur almennur húsbúnaður og lín er til staðar í íbúðinni, ásamt þráðlausri nettengingu. Nánari upplýsingar hjá Menningarmiðstöðinni í Listagili, Akureyri, s. 466-2609 og netfang listagil@listagil.is
Stofnunin hefur til umráða íbúð í húsnæði sínu fyrir fræði- og listamenn, íslenska sem erlenda. Um er að ræða íbúð á tveimur hæðum og er innangengt á vinnuloft Snorrastofu, þ.e. stórt bókasafn, tölvur og almenna vinnuaðstöðu.
Vinnu- og orlofshús Rithöfundasambandsins í Suðursveit
Húsið að Sléttaleiti í Suðursveit er gjöf Guðrúnar Sveinsdóttur í minningu foreldra sinna og bróður. En einnig til að heiðra minningu frænda sins Einars Braga skálds sem var hestastrákur í Sléttaleiti sumarið 1935.
Sléttaleiti stendur í grýttri hlíð rétt tvo km austan við Hala (Þórbergssetur). Útsýni er fagurt austur til fjalla í Nesjum og út á veraldarhafið.
Ef miðað er við gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar í Reykjavík þá eru 381 km að bústaðnum.
Umsóknir um dvöl að Hrauni skal senda undirrituðum á netfangið tryggvi.gislason@simnet.is. Leigugjald á viku er 24.000 krónur. Skal greiða það í reikning Hrauns í Öxnadalehf nr 0565-14-401487, KT 110638-3109, fjórum vikum áður en leigutími hefst. Verða þá sendar frekari upplýsingar um talnalykla að húsinu og öryggiskerfi þess.
Kúnstug kjallaraíbúð við Engjaveg í Mosfellsbæ (steinsnar frá Reykjalundi), með öllu sem til þarf fyrir rithöfunda ...
Hér er:
Rúmgóð (20 m2) stofa/vinnuherbergi með skápum, (svefn)sófa, sófaborði, skrifborði, útvarpi, bókahillum (og töluverðum slatta af bókum) og þráðlausu netsambandi, lítið svefnherbergi, skrítið en fullbúið eldhús, snyrting/sturta. Aðgengi og afnot af þvottavél og þvottahúsi. Stór og blómlegur garður.
Leiga (1 – 2 gestir): 15.000 kr./100 evrur á viku, hiti og rafmagn innifalið. Aukalega f. rúmföt og handklæði 5.000 kr./30 evrur á viku.
3. gestur: 6.000 krónur/40 evrur á viku.
Fallegar gönguleiðir allt um kring, 5 mínútna ganga að strætóstoppistöð (Leið 15, fer á Hlemm, að BSÍ og alla leið út á flugvöll), 2 mínútna ganga að sundlaug (Reykjalundur). 15 mínútna akstur til miðborgar Reykjavíkur.
Ath. Hentar illa fyrir ofnæmissjúklinga – kettir í húsinu og mikill gróður allt um kring.
Leigist eingöngu meðlimum í RSÍ eða systurfélögum erlendis. Leigutími: 1 – 6 vikur, frá föstudegi til föstudags. Áhugasamar/ir sendi línu á avarorn@internet.is