Gestaíbúðir á Norðurlöndum

Ylva Hellerud þýðandi heldur úti yndislegum gisti/vinnustað í suður Svíþjóð. Skoðið endilega heimasíðuna http://www.ordstationen.se/home.html

Á Álandi er gestaíbúð sem stendur norrænum listamönnum til boða.

Hirsholmene eru eyjar í tæplega klukkutíma siglingu frá Frederikshavn í Danmörku. Dansk Kunstnerråd hefur tekið tvö hús í eyjunum á leigu og hyggst nota þau sem íbúðir fyrir listamenn sem eiga aðild að ráðinu.

Yfirvöld í Rogalandi í Noregi bjóða rithöfundum, og öðrum listamönnum sem vilja heimsækja Rogaland, ókeypis íbúðir. ætlunin er að gefa innlendum og erlendum listamönnum tækifæri til að upplifa menningu og umhverfi á svæðinu.

Íslenskir rithöfundar sem eiga leið um Stokkhólm geta fengið ódýra gistingu í Författarnas Hus, Drottninggatan 88 B, Stockholm.

Í Helsinki geta íslenskir rithöfundar fengið ódýra næturgistingu í rithöfundahúsinu Villa Kivi.

Íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn skv. reglum um hús Jóns Sigurðssonar. Fræðimenn, sem hyggjast stunda rannsóknir eða vinna að verkefnum í Kaupmannahöfn, geta sótt um afnot af íbúðinni. Hún er í Skt. Paulsgade 70 (skammt frá Jónshúsi) en auk þess hefur fræðimaður vinnuherbergi í Jónshúsi.

Húsið "Gammel Have" í Ringe á Fjóni stendur norrænum rithöfundum og öðrum listamönnum til boða. Húsið er í eigu Minningarsjóðs Hans Peder Hansen og Margrethe Hansen.

Hús Júlíusar Bomholts, "Dikterhjemmet" í Sönderho á Fanö í Danmörku stendur til boða sem bústaður fyrir norrænan rithöfund með fjölskyldu. Húsinu er úthlutað til þriggja mánaða í senn með möguleika á framlengingu.

Í Visby á Gotlandi er Baltneska höfunda- og þýðendamiðstöðin. Þar býðst rithöfundum og þýðendum frá öllum Norðurlöndunum og þeim löndum sem liggja að Eystrasalti kostur á að dveljast við ritstörf einn mánuð í senn án þess að greiða húsaleigu.

Menningarmáladeild Stokkhólmsborgar býður dvöl í gestabústaðnum Villa Bergshyddan, sem staðsettur er í miðborg Stokkhólms.



Rithöfundasambandið | Gunnarshúsi | Dyngjuvegi 8 | 104 Reykjavik | s: 568 3190 | fax: 568 3192  |rsi hjá rsi.is  | opið 10.00 - 14.00