English
Greiðslur vegna bókasafna

Af árlegu framlagi úr ríkissjóði er úthlutað samkvæmt lögum 91/2007 til rithöfunda, þýðenda, myndhöfunda og annarra rétthafa sem eiga bækur á Landsbókasafni-Háskólabókasafni, almenningsbókasöfnum, skólabókasöfnum, og bókasöfnum stofnana sem kostuð eru af ríkissjóði eða sveitarfélögum. Lög um bókmenntasjóð og fleira tóku gildi 17.3.2007 og þá féllu úr gildi lögin um Bókasafnssjóð höfunda frá 1. janúar 1998.

Hverjir fá úthlutun?
Rithöfundar, þýðendur, myndhöfundar, tónskáld og eftirlifandi makar rétthafa eða börn (undir 18 ára aldri) látinna rétthafa geta sótt um hjá sjóðnum og fengið greitt árlega miðað við útlán verka.

Undantekningar
Ef fleiri en þrír höfundar eru að verki veitir það ekki rétt til úthlutunar. Ritstjórar, höfundar formála og kynningartexta falla ekki undir úthlutunarreglur. Bækur, aðrar en barnabækur, undir 36 bls. veita ekki rétt til úthlutunar. Greinar og annað efni í dagblöðum, tímaritum og safnritum veita ekki rétt og sama gildir um verk á erlendum tungumálum. Myndskreytingar á bókakápum veita ekki rétt. Aðrir erfingjar en eftirlifandi makar eða börn undir 18 ára aldri eiga ekki rétt til úthlutunar úr sjóðnum.

Hvað á að gera til að fá úthlutun?
Viðkomandi rétthafar verða að skila inn umsókn á sérstökum eyðublöðum sem fást hér til hliðar.

Fá allir jafn mikið?
Þýðendur fá 2/3 af greiðslu frumhöfundar og erfingjar helming af greiðslu höfundar.
Séu höfundar fleiri en einn (t.d. rithöfundur og myndhöfundur) skiptist réttur til úthlutunar eftir samkomulagi þeirra.

Þarf að sækja um fyrir hverja nýja bók?
Það nægir að skila inn umsókn einu sinni. Eftir það sér úthlutunarnefnd um skráningu nýrra verka þeirra höfunda sem þegar hafa sótt um. Nauðsynlegt er þó að tilkynna um breytingar á heimilisfangi eða bankareikningi.

Hvernig er reiknað út hvað hver á að fá?
Þegar upplýsingar um útlán bókasafna hafa borist ár hvert er reiknaður út fjöldi útlána á skráð verk. Miðað
er við útlánatölur frá Landskerfi bókasafna. Fjölda útlána er deilt í þá fjárhæð sem til ráðstöfunar er og fæst þá ákveðin krónutala á hvert útlán. Árið 2007 voru greiddar 21 kr. á hvert útlán ársins 2009.

Hvað með hljóðbækur, myndbönd og geisladiska?
Fyrir hljóðbækur er úthlutað á sama hátt og fyrir venjulegar bækur. Efni á myndböndum, tónsnældum eða geisladiskum veitir ekki rétt til úthlutunar.

Nánari upplýsingar
Skrifstofa Rithöfundasambandsins Íslands vistar sjóðinn. 

Úthlutunarnefnd greiðslna fyrir afnot bóka á bókasöfnum skipuð af menntamálaráðherra til fjögurra ára (2010 - 2013: 

Valborg Þ. Snævarr formaður (skipuð án tilnefningar)
Sveinn Yngvi Egilsson (skipaður án tilnefningar)
Guðni Kolbeinsson (tilnefnd af Rithöfundasambandi Íslands),
Jónína Guðnadóttir (tilnefnd af Myndstefi - Myndhöfundasjóði Íslands),
Þórunn Sigurðardóttir (tilnefnd af Hagþenki - félagi höfunda fræðirita og kennslugagna).



Rithöfundasambandið | Gunnarshúsi | Dyngjuvegi 8 | 104 Reykjavik | s: 568 3190 | fax: 568 3192  |rsi hjá rsi.is  | opið 10.00 - 14.00