SAMNINGUR VIÐ LEIKFÉLAG AKUREYRAR
Leikskáldafélag Íslands og Rithöfundasamband Íslands annarsvegar og Leikfélag Akureyrar hinsvegar gera með sér svofelldan samning:
1. gr. Sýningarréttur
Leikfélagi Akureyrar ber að gera skriflegan samning við höfund jafnskjótt og verk hans hefur verið samþykkt til flutnings. Leikhúsið skal staðfesta móttöku handrits með dagsettri og undirritaðri yfirlýsingu. Leikhúsið skuldbindur sig til að gefa höfundi svar innan 4 mánaða frá því handrit berst leikhúsinu um það hvort leikrit hans verði tekið til sýninga. Leikhúsið hefur sýningarrétt á keyptu leikverki svo lengi sem sýningar eru samfelldar. Við sérstakar aðstæður má þó gera hlé á sýningum allt að 9 mánuðum. Ef sviðsetning verks er ekki hafin innan tveggja ára frá undirritun samnings missir leikhúsið flutningsréttinn, en lágmarkshöfundargreiðslu skal þó greiða að fullu sbr. 2. gr. innan eins árs.
2. gr. Höfundagreiðsla
Við frumflutning leikrits (leikverks) greiðir Leikfélag Akureyrar lágmarkshöfundagreiðslu sem er kr. 1.882.528 þegar um fyrsta verk höfundar í leikhúsinu eða sambærilegu atvinnuleikhúsi er að ræða, en annars kr. 1.924.832 og greiðist sem hér segir:
A. Fullbúið verk.
Helmingur lágmarksgreiðslunnar greiðist við undirritun samnings, 30% við fyrstu æfingu og 20% strax eftir frumsýningu.
B. Verk í smíðum.
Fyrir verk í smíðum greiðist
- 1/8 af lágmarkshöfundarlaunum þegar leikhúsið semur við leikskáld um að vinna að verki byggðu á hugmynd eða verklýsingu.
- 1/8 einum mánuði eftir fyrstu greiðslu
- 1/8 við skil á drögum að verkinu
- 1/8 við skil á fullbúnu handriti
- 2/8 við fyrstu æfingu
- 2/8 strax eftir frumsýningu.
C. Höfnun
Ef fullbúnu verki er hafnað, heldur leikskáldið þeim greiðslum sem þegar hafa verið inntar af hendi.
Höfundargreiðsla er verktakagreiðsla nema um annað sé samið sérstaklega.
3. gr. Viðbótargreiðsla
Fyrir einstakar sýningar, eftir að 10.000 aðgöngumiðar hafa selst, greiðist mánaðarlega eftir á 12% af andvirði seldra aðgöngumiða umfram það. Ef um er að ræða söngleik með hækkuðu miðaverði, er eftir sem áður miðað við venjulegt miðaverð.
4. gr. Endurflutningur
Lágmarkstrygging fyrir endurflutning skal nema a.m.k. helmingi þeirrar upphæðar sem tilgreind er í 2. grein. Það telst vera frumflutningur leikverks ef það hefur ekki áður verið sýnt hérlendis í atvinnuleikhúsi eða sjónvarpi. Sé um endurflutning að ræða greiðir leikhúsið pr. sýningu þá upphæð sem tilgreind er í 3. grein og með sömu skilmálum eftir að 10.000 aðgöngumiðar hafa verið seldir.
5. gr. Stutt leikverk
Leikrit sem er 70 mínútur eða lengra telst vera heils kvölds verk og sömuleiðis barnaleikrit sem er 60 mínútur eða lengra. Ef fleiri en eitt stutt leikrit mynda heils kvölds sýningu skiptast höfundarlaunin milli höfunda í hlutfalli sem tilgreina skal í samningi. Sé um að ræða stutt verk eða einþáttung, sem leikhúsið sýnir með lækkuðu aðgöngumiðaverði, mega greiðslur skv. 2. grein lækka hlutfallslega.
6. gr. Tilraunaverk og leiksmiðjuverkefni
Í sérstökum tilvikum, þegar um tilraunaverk að leiksmiðjuverkefni er að ræða, skal höfundur fá greitt í hlutfalli við framlag sitt til verkefnisins.
7. gr. Þóknun fyrir þýðingar
Fyrir afnotarétt þýðinga eftir félaga í Leikskáldafélagi Íslands og Rithöfundasambandi Íslands greiðir Leikfélag Akureyrar:
A. Venjulegt heils kvölds leikrit: kr. 317.280
B. Leikrit, sem krefst meiri vinnu af þýðanda vegna málsfars, stíls eða lengdar: kr. 475.920
C. Leikrit í bundnu máli: kr. 634.560
Lágmarksgjald fyrir þýðingar fellur allt í gjalddaga þegar þýðandi hefur skilað verki sínu til leikhússins. Þegar 15.000 aðgöngumiðar hafa verið seldir greiðir leikhúsið þýðandanum aukaþóknun að upphæð kr. 63.456,-. Fyrir endurflutning leikrits skal þýðandi fá helming ofangreindra greiðslna.
8. gr. Staðfærslur
Ef þýðing felur í sér staðfærslu, þ.e. aðlögun efnis að öðrum aðstæðum en felast í frumtexta, skal þóknun aldrei vera lægri en B liður 7. greinar kveður á um. Ef um verulega staðfærslu er að ræða, þ.e. endursamning efnisins að hluta, skal greiða aukalega 12% af B. lið 7. greinar.
9. gr. Leikgerðir
Leikhúsið skal í öllum tilfellum greiða full höfundarlaun fyrir leikgerðir (sbr. grein 2). Það telst vera leikgerð ef annarri tegund bókmenntaverka er breytt í leikrit. Höfundagreiðsla skiptist milli frumhöfundar og leikgerðarhöfundar samkvæmt hlutfalli sem samið er um sérstaklega. Hafi réttur frumhöfundar fallið úr gildi, rennur hlutfall hans af höfundarlaununum til Leikskáldafélags Íslands. Höfundur leikgerðar skal þó aldrei fá minna en sem nemur 50% af lágmarkshöfundagreiðslu.
10. gr. Sýningar í sjónvarpi
Leikhúsið áskilur sér rétt til að semja við framleiðendur sjónvarpsefnis um sýningu í sjónvarpi á uppfærslum leikhússins að höfðu samráði við höfund.
11. gr. Myndefni úr sýningu
Leikhúsið skal láta höfundi í té a.m.k. 10 góðar ljósmyndir úr sýningunni af myndum þeim sem teknar hafa verið vegna kynningar á verkinu. Auk þess skal höfundur eiga rétt á afriti til einkanota af myndbandsupptöku eða annarri sambærilegri upptöku sem gerð hefur verið af endanlegri sviðssetningu verksins. Heimilt er höfundi að nota allt að 90 sekúndna samfelldan kafla úr slíkri upptöku til kynningar á höfundarverki sínu.
12. gr. Breytingar á launaviðmiðun
Allar greiðslur í samningi þessum taka á samningstímanum mið af breytingum sem verða á launavísitölu frá og með 1. maí 2006 samkvæmt útreikningi Hagstofu Íslands og skulu uppfærðar í janúar ár hvert.
13. gr. Gildistími
Samningur þessi er gerður í þremur samhljóða eintökum og heldur hver aðili sínu. Hann gildir frá undirskriftardegi til 1. ágúst 2009. Samningurinn endurnýjast sjálfkrafa um eitt ár í senn, hafi enginn aðila látið í ljós skriflega ósk um endurskoðun hans tveimur mánuðum áður en gildistíminn rennur út.
14. gr. Annað
Rísi mál út af samningi þessum má reka það fyrir Bæjarþingi Reykjavíkur og skuldbinda aðilar sig til að mæta með innanbæjarfyrirvara.
Reykjavík, 5. apríl 2006.
Með fyrirvara um samþykki félagsfunda.
Fyrir hönd Leikfélags Akureyrar Fyrir hönd Leikskáldafélags Íslands
Magnús Geir Þórðarson Hávar Sigurjónsson
Fyrir hönd Rithöfundasambands Íslands
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson