Námsgagnastofnun og Rithöfundasamband Íslands gera hér með eftirfarandi samning er fjallar um greiðslu ritlauna til höfunda eða umboðsaðila þeirra fyrir afnot af ritverkum í lesbókum og öðrum safnritum gefnum út af Námsgagnastofnun, sbr. 17.gr. höfundalaga frá 29. maí 1972.
1.gr.
Fyrir afnot ritverka greiðir Námsgagnastofnun Rithöfundasambandinu, eða þeim er það tilvísar, svo sem hér segir:
a) Fyrir laust mál, frumsamið, greiðist kr. (sjá taxta hér að neðan) fyrir hverja meðalsíðu og byrjaða blaðsíðu. Meðalsíða telst blaðsíða sem á eru 2160 letureiningar. Þegar einingafjöldi á síðu er annar skal umreikna hann í meðalsíðu. Fyrir þýðingar greiðast 50% af ritlaunum fyrir frumsamið efni.
b) Fyrir frumsamið ljóð, allt að 20 ljóðlínur, greiðist kr. (sjá taxta hér að neðan). Fyrir hverja ljóðlínu umfram, greiðist kr. (sjá taxta hér að neðan). Fyrir þýdd ljóð greiðast sömu ritlaun.
2.gr.
Greiðslur samkvæmt 1.gr. eru miðaðar við allt að 5.000 prentuð eintök bókar í frumútgáfu, samkvæmt prentseðli. Sé upplag meira breytast greiðslur í samræmi við það. Fyrir endurútgáfu greiðast sömu ritlaun. Verði almennar kaupgjaldshækkanir á samningstímabilinu skal hækka ofangreind ritlaun um jafnmarga hundraðshluta og laun samkvæmt 63. launaflokki starfsmanna ríkisins, 5. þrepi hafa hækkað á sama tímabili.
3.gr.
Í marsmánuði ár hvert sendir Námsgagnastofnun Rithöfundasambandinu skýrslu og prentseðla um bækur með gjaldskyldu efni, samkvæmt samningi þessum, sem hún hefur gefið út á almanaksárinu á undan. Ef Rithöfundasambandið gerir ekki athugasemd við skýrsluna fyrir apríllok sama ár skoðast hún samþykkt. Ritlaun fyrir efnið teljast þá gjaldfallin og skulu greidd innan eins mánaðar frá því skýrslan var samþykkt. Gjaldfallin ritlaun miðast við kaupgjald þess mánaðar þegar greiðsla fer fram.
4.gr.
Skylt er Námsgagnastofnun að fá leyfi höfundar til að birta eftir hann efni samkvæmt samningi þessum og sýna honum af því eina próförk. Höfundur skal jafnan fá eintak af bók þar sem birt er efni eftir hann. Rithöfundasambandinu er skylt að hafa milligöngu um þessi atriði.
5.gr.
Námsgagnastofnun greiðir Rithöfundasambandinu árlega upphæð sem nemur 20% af greiðslum til höfunda, samkvæmt samningi þessum, sem þóknun fyrir milligöngu og þjónustu vegna þessa samnings.
6.gr. Nú kemur fram að Námsgagnastofnun er lögskylt að greiða fyrir umræddan höfundarétt verka til annarra höfunda en þeirra sem Rithöfundasambandið hefur umboð fyrir og skal þá Rithöfundasambandið greiða rétthöfum tilskilið gjald samkvæmt samningi þessum.
7.gr.
Námsgagnastofnun er skylt að geta þess í bókum sínum hvaðan efni eftir íslenska höfunda er tekið í bækurnar. Einnig skal höfundar og þýðanda jafnan getið í efnisyfirliti bókar.
8.gr.
Samningur þessi tekur ekki til efnis sem frjálst er til útgáfu, sbr. IV. kafla höfundarlaga frá 29. maí 1972
9.gr.
Um allt annað efni en hér að ofan greinir, frumsamið eða þýtt, skulu gilda samningar Rithöfundasambands Íslands við Félag íslenskra bókaútgefenda.
10.gr.
Samningur þessi tekur gildi 1. desember 1985. Hann endurnýjast sjálfkrafa um eitt ár í senn hafi hvorugur aðili látið í ljós skriflega ósk um endurskoðun hans, fyrir 1. maí ár hvert.
11.gr.
Samningur þessi er gerður í tveimur samhljóð eintökum og heldur hvor aðili sínu.
Reykjavík, 6. desember 1985
Til útprentunar
Taxti Námsgagnastofnunar
(miðað er við launavísitölu til greiðslujöfnunar í janúar 2010, 7.450 stig)
Fyrir áður prentað efni í allt að 5000 prentuðum eintökum frumútgáfa sem endurútgáfa:
| Laust mál, frumsamið, meðalsíða 2160 ein. og hver byrjuð síða | kr. 4.035 |
| Laust mál, þýtt, meðalsíða 2160 ein. og hver byrjuð síða | kr. 2.017 |
| Ljóð, frumsamin og þýdd, allt að 20 ljóðlínum | kr. 8.063 |
| hver ljóðlína umfram 20 | kr. 339 |
Sé upplag yfir 5 þúsund breytast greiðslur í samræmi við það.
Um frumbirtingu efnis fer eftir útgáfusamningi RSÍ og FÍB.