Samkeppnisreglur Rithöfundasambands Íslands

Rithöfundasamband Íslands setur eftirfarandi reglur til leiðbeiningar fyrir þá sem standa að samkeppni um bókmenntaverk:

1. Auglýsingar og kynningar

Í auglýsingum og kynningum á bókmenntasamkeppni skal skýrt tekið fram hvernig og hvenær handritum eða keppnisgögnum skal komið til skila og hverjir skipi dómnefnd. Þar skal einnig kveðið á um verðlaunafé og fjölda verðlauna. Ef áskilinn er réttur til að veita engin verðlaun eða fækka þeim skal það tekið sérstaklega fram. Einnig skal auglýsa það sérstaklega ef ekki á að skila þeim gögnum sem send eru í keppnina eða hvernig hægt verði að nálgast innsend keppnisgögn eftir að dómnefnd hefur lokið störfum. Forgangsréttur til útgáfu eða birtingar verðlaunaverka skal einnig tilgreindur.

2. Meðferð keppnisgagna

Öll meðferð keppnisgagna sé hin vandaðasta og umslög með upplýsingum um nöfn keppenda geymd hjá viðkomandi sýslumanni á meðan dómnefnd starfar. Aðeins skulu opnuð þau umslög sem tengjast vinningshöfum.

3. Dómnefndir

Dómnefnd skal skipa áður en keppni er auglýst og henni kynntar keppnisreglur, skilafrestur, upphæð verðlauna og þess háttar. Dómnefndir skulu að jafnaði vera þannig skipaðar: Einn af þremur dóm­nefndar­mönnum skal tilnefndur af viðkomandi fagfélagi/stéttarfélagi, einn skal tilnefndur af bókmenntastofnun og einn af þeim sem fyrir keppninni stendur. Ef dómnefnd telur fimm skulu tveir tilnefndir af viðkomandi fagfélagi/stéttarfélagi, einn af bókmenntastofnun og tveir af þeim sem fyrir keppninni stendur.

4. Verðlaunafé, úrslit og afhending verðlauna

Dómnefnd ber að gæta þess að verðlaunafé sé hæfilegt, það rýrni ekki á þeim tíma sem keppnin stendur yfir og sé ávallt til viðbótar höfundargreiðslum. Dómnefnd skal í samráði við þá sem að keppninni standa sjá til þess að kynning á úrslitum og verðlaunaveiting sé með viðeigandi hætti.

5. Samningar um útgáfu eða birtingu

Dómnefnd fylgi því jafnan eftir að gerðir séu samningar um útgáfu eða birtingu verðlaunaverka eigi síðar en fjórum vikum eftir að úrslit eru kunngerð.





Rithöfundasambandið | Gunnarshúsi | Dyngjuvegi 8 | 104 Reykjavik | s: 568 3190 | fax: 568 3192  |rsi hjá rsi.is  | opið 10.00 - 14.00