Tilraunasamningur um rafbókaútgáfu

15. nóvember 2011

Tilraunasamningur um rafbókaútgáfu

milli Rithöfundasambands Íslands og Félags íslenskra bókaútgefenda

Samningsaðilar eru einhuga um eftirfarandi ákvæði og skilyrði vegna tilraunasamnings um  rafbókaútgáfu:

1.      Samningsaðilar gera hér með rammasamning um sölu rafbóka á reynslutímabili.

2.      Samningsaðilar vilja nýta reynsluna sem skapast við útgáfu bókmennta á rafrænu formi áður en samningur til lengri tíma er gerður.

3.      Samningsaðilar eru einhuga um að samningur þessi  hafi ekki fordæmisgildi fyrir þá samninga sem síðar verða gerðir um útgáfu  rafbóka.

4.      Samningurinn milli samningsaðila gerir ráð fyrir að höfundarlaun reiknist sem hlutfall af nettóverði, þ.e. útsöluverði að frádregnum virðisaukaskatti og afslætti vegna endursölu.

5.      Við áframhaldandi sölu verksins á rafbók eftir 31.12.2013 er gert ráð fyrir að nýr samningur taki við eða að sérstakur  samningur milli höfundar og útgefanda sé fyrirliggjandi. Ef  nýr rafbókarsamningur liggur ekki fyrir, er samt sem áður hægt að bjóða verkið til sölu sem rafbók í allt að sex mánuði án þess að um það sé sérstaklega samið.

6.      Samningsaðilar skulu funda að minnsta kosti hálfsárslega á samningstímabilinu til að skiptast á upplýsingum og reynslu varðandi sölu á rafbókum, flokkunarvandamál, ólöglega eintaka-gerð, stafrænar afritunarvarnir og tilraunasamninginn. Hvor samningsaðili getur þess utan óskað eftir fundum.

7.      Höfundurinn á rétt á 25% höfundarlaunum af fyrstu 2200 seldu eintökunum, en eftir það 30%.

8.      Höfundur á ekki rétt á fyrirframgreiðslu vegna rafbókarútgáfu.

9.      Varðandi önnur atriði um útgáfuna vísast til grunnútgáfusamnings Rithöfundasambands Íslands og Félags íslenskra bókaútgefenda.

10.  Tilraunasamningur þessi gildir til 1.1.2014.

11.  Samningur þessi er uppsegjanlegur af beggja hálfu á samningstímabilinu með 3. mánaða fyrirvara.

 

Samningurinn er gerður í tveimur samhljóða eintökum.

 

                                                Reykjavík  9. nóvember 2011.

 

Rithöfundasamband Íslands                                           Félag íslenskra bókaútgefenda

 

 

Útgáfusamningur um rafbækur

 

Undirritaðir ______________________________________________________

í samningi þessum nefndur höfundurinn og _____________________________________

í samningi þessum nefndur útgefandinn, gera með sér með þeim skilmálum sem að neðan greinir svofelldan samning um rafræna útgáfu verksins _______________________________

1.      Höfundurinn veitir útgefandanum leyfi til að gefa verkið út í rafrænu formi og kemur samningur þessi í stað ákvæða um rafræna útgáfu í fyrri samningi um prentútgáfu verksins.

2.      Verkið skal gefið út óbreytt frá prentaðri útgáfu, en útgefandi  getur þó gert á því tæknilegar breytingar sem kunna að vera nauðsynlegar vegna rafrænnar sölu og dreifingar.

3.      Áætlaður útgáfudagur verksins er_______________. Komi verkið ekki út sem rafbók innan sex mánaða frá þeim tíma þarf að endurnýja samning þennan skriflega.

4.      Rafræna útgáfan skal vera í samræmi við nýjustu prentaða útgáfu verksins.

5.      Útgefandinn er ábyrgur fyrir því á hverjum tíma hvernig verkið er varið með afritunarvörnum og hvaða afritunarvarnir eru notaðar.

6.      Höfundarlaun skulu nema 25% af nettó söluverði rafbókar fyrir allt að 2200 seld eintök, en síðan 30% af nettó söluverði fyrir sölu umfram 2200 eintök. Með nettóverði er átt við útsöluverð að frádregnum virðisaukaskatti og afslætti vegna endursölu.

7.      Höfundurinn á ekki rétt á fyrirframgreiðslu eða lágmarkshöfundarlaunum fyrir rafrænu útgáfuna.

8.      Fyrir hvert almanaksár er útgefandanum skylt í síðasta lagi hinn 1. júní næsta ár á eftir að láta höfundinum í té uppgjör. Að öðru leyti verði uppgjör í samræmi við það sem kveðið er á um í samningi um prentútgáfur.

9.      Útgefandinn skal láta höfundi í té rafrænt eintak verksins í gegnum rafrænt vöruhús útgefenda og því hlaðið beint inn á lestölvu eða annan sambærilegan búnað höfundarins.

10.  Varðandi önnur atriði um útgáfuna vísast til grunnútgáfusamnings Rithöfundasambands Íslands og Félags íslenskra bókaútgefenda.

11.  Samningur þessi gildir til  1.1.2014. Hafi Félag íslenskra bókaútgefenda og Rithöfunda-samband Íslands ekki náð samkomulagi um nýjan samning að samningstíma loknum þá skal þessi samningur allt að einu gilda fyrir báða samningsaðila þangað til honum er sagt upp. Gagnkvæmur uppsagnarfrestur er þá 2 vikur.  

      Staður og dagsetning ______________________________

 

__________________________                 _____________________________

Undirskrift höfundar                                        Undirskrift útgefanda

 




Rithöfundasambandið | Gunnarshúsi | Dyngjuvegi 8 | 104 Reykjavik | s: 568 3190 | fax: 568 3192  |rsi hjá rsi.is  | opið 10.00 - 14.00