STJÓRN SÍUNG:

Stjórn SÍUNG var kjörin á aðalfundi 2009. Stjórnina skipa:

Iðunn Steinsdóttir formaður (idunn@islandia.is)
Olga Guðrún Árnadóttur ritari (olgagudrun@internet.is)

Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson gjaldkeri (asberg@dimma.is)


Meðstjórnandi er Kristín Helga Gunnarsdóttir
og endurskoðandi er Gunnhildur Hrólfsdóttir.


FÉLAGATAL SÍUNG:

Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson  (asberg@dimma.is)

Andrés Indriðason  (andi@isholf.is)

Andri Snær Magnason  (andri@simnet.is)

Anna Kristín Brynjúlfsdóttir  (anna@icestory.com)

Anna Heiða Pálsdóttir  (anna@ritlist.is)

Árni Árnason  (arniarna@hive.is)

Áslaug Jónsdóttir  (AslaugJonsdottir@hive.is)

Bergljót Arnalds  (bergljot@virago.is)

Birgitta H. Halldórsdóttir  (langamyri@emax.is)

Brynhildur Þórarinsdóttir  (brynh@unak.is)

Elías Snæland Jónsson  (esj@icestory.com)

Elín Elísabet Jóhannsdóttir  (elinel@internet.is)

Guðjón Sveinsson  (manaberg@mi.is)

Guðmundur Ólafsson  (tenor@internet.is)

Guðrún Hannesdóttir  (gudrunha@mmedia.is)

Guðrún Helgadóttir  (gudrun.helgadottir@simnet.is)

Guðrún Helga Sederholm  (gsed@simnet.is)

Gunnhildur Hrólfsdóttir  (gunnhildur.hrolfsdottir@gmail.com)

Hallfríður Ingimundardóttir  (hallfridur@simnet.is)

Haraldur S. Magnússon  (hsm@itn.is)

Heiðdís Norðfjörð  (heiddis@rjoma.is)

Helga Möller  (helgam@heimur.is)

Helgi Guðmundsson  (helgi@aknet.is)

Herdís Egilsdóttir  (halldora@lifsleikni.is)

Hrafnhildur Valgarðsdóttir  (krass@simnet.is)
Huginn Þór Grétarsson (kaupsala@hotmail.com)

Iðunn Steinsdóttir  (idunn@islandia.is)

Jenna Jensdóttir 
(hefur ekki netfang)
Jón Hjartarson  (jhjartar@mi.is)
Jónína Leósdóttir ( jleos@simnet.is)

Kristín Helga Gunnarsdóttir  (dinna@mmedia.is)

Kristín Steinsdóttir  (krilla@aknet.is)

Magnea frá Kleifum 
(hefur ekki netfang)
Olga Guðrún Árnadóttir  (olgagudrun@internet.is)

Ragnheiður Gestsdóttir  (goag@mi.is)

Rúna K. Tetzschner  (runakt@hive.is)

Sigrún Eldjárn  (seld@itn.is)

Yrsa Sigurðardóttir  (yrsa@vijv.is
, yrsa@fjarhitun.is)
Þorgrímur Þráinsson  (andi@andi.is)

Þorvaldur Þorsteinsson  (mypocket@this.is)

Þórey Friðbjörnsdóttir  (thoreyf@simnet.is)

Um samtökin:

Þegar lesin eru gömul fréttabréf Rithöfundasambandsins má glöggt sjá að upp úr 1990 hefur gætt megnrar óánægju hjá þeim hópi sem skrifar fyrir börn og unglinga.

5. apríl það ár er haldinn félagsfundur RSÍ í Hafnarstræti 9 og er yfirskrift hans „Málefni barna- og unglingabókahöfunda“. Olga Guðrún Árnadóttir setti fund og greindi frá tildrögum hans. Þau má rekja aftur til stjórnarfundar RSÍ 6. okt. 1988 en þá var ákveðið að halda þing um barnabókmenntir sem svo var slegið á frest. Undirbúningsnefnd hafði verið skipuð en kjarni hennar hélt áfram að hittast og ræða stöðu þessara mála þótt ekkert yrði af ráðstefnuhaldi. Má kannski segja að Launasjóður rithöfunda hafi óbeint stuðlað að því að upp úr sauð vorið 1990. Úthlutunin um veturinn var rýr og hlutur þeirra sem skrifuðu fyrir börn og unglinga dapur.

Á þessum tíma voru úthlutanir úr Bókasafnssjóði hvorki fugl né fiskur. Taldir voru kilir í bókasafni (sumir segja gamla Borgarbókasafni Reykjavíkur!) og á grundvelli þeirrar talningar var úthlutað til rithöfunda. Skólabókasöfn töldust ekki með en þar voru okkar bækur mest lesnar! Mönnum sveið þetta allt og vildu aðgerðir. Formaður RSÍ, Einar Kárason, sat fundinn 5. apríl og lýsti yfir stuðningi sínum við að stofnuð yrðu samtök barna- og unglingabókahöfunda innan RSÍ. Taldi hann að það gæti orðið öðrum hópum til hvatningar. Var ákveðið að taka málið upp á aðalfundi félagsins 22. apríl sama ár en eftirfarandi ályktunartillaga frá Olgu Guðrúnu lesin upp og samþykkt samhljóða:

„Almennur félagsfundur í RSÍ, haldinn 5. apríl 1990, álítur nauðsynlegt að stofnaður verði starfshópur innan Rithöfundasambandsins til að vinna að hagsmunamálum höfunda barna- og unglingabóka. Hóp þennan skipi 5 rithöfundar, tilnefndir af félagsfundi. Hlutverk hópsins verði að fjalla um hvers kyns hugmyndir sem orðið gætu til að bæta starfsskilyrði og fjárhagsafkomu barna- og unglingabókahöfunda og vinna að framgangi þeirra í samráði við stjórn Rithöfundasambandsins. Hópurinn skili skýrslu um starf sitt til félagsfundar í síðasta lagi 1. febrúar 1991, og verður þá tekin ákvörðun um framhaldið.“

Fundurinn skipaði svo starfshópinn: Andrés Indriðason, Guðlaugu Richter, Iðunni Steinsdóttur, Olgu Guðrúnu Árnadóttur og Ragnheiði Gestsdóttur.

Á aðalfundinum 22. apríl var mikið fjör og barna- og unglingabókahöfundar fjölmenntu! Borin var upp tillaga frá stjórn RSÍ sem samþykkt var einróma: „Aðalfundur RSÍ skorar eindregið á stjórnvöld að hefja nú þegar endurskoðun þeirra úreltu laga og reglna sem gilda um greiðslur fyrir afnot af bókum á bókasöfnum.“

Og stjórn RSÍ lagði fram aðra tillögu: „Aðalfundur RSÍ leggur áherslu á mikilvægi barna- og unglingabókmennta og nauðsyn þess að höfundar barna- og unglingabóka sitji við sama borð og aðrir rithöfundar hvað varðar styrkveitingar og annað það sem snertir kjör og starfsskilyrði rithöfunda, en á því hefur verið mikill misbrestur.“ Þessi tillaga var einnig samþykkt einróma.

Umræður voru fjörugar. Meðal annars benti Iðunn Steinsdóttir á Bókatíðindin í meinfyndinni ádrepu og tíundaði hvernig allt er tínt til þar á bæ áður en kemur að barnabókum sem eru aftastar í ruslakistunni! Strax næstu jól var búið að gera bragarbót á Bókatíðindunum og skáldsögur fyrir börn komnar á bekk með öðrum íslenskum skáldsögum. Síðan hefur sú uppröðun haldist!

Já, þetta voru hitatímar en skemmtilegir í bland. Upp úr þessu hittist undirbúningshópurinn mánaðarlega. Hann stækkaði og fleiri félagar runnu inn í byrjunarhópinn. Undirbúningshópur var leiðindanafn og mjög snemma kom upp nafnið SÍUNG sem þótti hafa skemmtilega skírskotun auk þess að vera skammstöfun hópsins að hluta til (Samtök íslenskra barna- og unglingabókahöfunda). Upp frá því hefur nafnið verið notað og ekkert annað.

Í átta ár voru þetta grasrótarsamtök, enginn var í stjórn, bara ákveðinn fundartími og menn hittust og ræddu um það sem þeir voru að gera og það sem þeir gátu ekki gert. Þarna fóru fram skemmtileg skoðanaskipti, stundum snörp en alltaf uppbyggileg. Grasrótinni tókst líka að verða sýnileg á margan hátt og láta að sér kveða. Þannig tók hún þátt í ráðstefnum, gaf út höfundabækling á ensku, stóð að baki hefti um íslenskar barnabækur austur í Moskvu (Detskaja Literatura) og beitti sér á margan hátt fyrir því að gera barna- og unglingabækur og þá sem þær skrifa sýnilegri í þjóðfélaginu.

Fyrstu árin voru fundir fámennir en félögum fjölgaði og þar kom að rétt þótti að stofna samtökin og skipa stjórn. Það var samþykkt á formlegum stofnfundi félagsins 11. mars 1998. Þá hafði félagið starfað óformlega frá vori 1990. Sameiginlegur kvöldverður var pantaður frá NING og rauðvín drukkið með!

Fyrstu stjórn skipuðu: Kristín Steinsdóttir formaður, Gunnhildur
Hrólfdóttir ritari (en varð fljótt formaður þegar Kristín fluttist til Noregs), Árni Árnason gjaldkeri. Varamaður var Þorgrímur Þráinsson og endurskoðandi Olga Guðrún Árnadóttir.

Félagar eru nú tæplega 40 talsins. Allir barna- og unglingabókahöfundar í Rithöfundasambandinu geta orðið félagsmenn í SÍUNG en þeir verða það ekki sjálfkrafa. Menn verða með öðrum orðum að bera sig eftir því. Fundir eru haldnir í Gunnarshúsi. Þeir eru boðaðir á Netinu. Aðalfundur er haldinn í mars ár hvert og árgjald er kr. 1000.

Segja má að samtökunum hafi ekki verið neitt óviðkomandi síðan þau fóru af stað. En þrátt fyrir margvísleg umsvif er reynt að gleyma ekki því sem tengir hópinn saman, halda í skoðanaskiptin, grasrótarstemninguna og haga fundum þannig að mönnum finnist til nokkurs barist að mæta.