Bókmenntasjóður var stofnaður með lögum nr. 91/2007. Hlutverk hans er að efla íslenskar bókmenntir og bókaútgáfu. Sjóðurinn rækir hlutverk sitt með því að:
Bókmenntasjóður tekur við hlutverki Bókmenntakynningarsjóðs, Menningarsjóðs og þýðingarsjóðs. Stjórn bókmenntasjóðs er skipuð af menntamálaráðherra til þriggja ára í senn, tveir samkvæmt tilnefningu Rithöfundasambands Íslands, einn af Félagi íslenskra bókaútgefenda, einn af Hagþenki – félagi höfunda fræðirita og kennslugagna og formaður stjórnarinnar er skipaður án tilnefningar. www.bok.is
Einnig leysa lögin um bókmenntasjóð og fleira af hólmi lög um bókasafnssjóð höfunda nr. 33/1997. Í 3. kafla er mælt fyrir um greiðslur til höfunda vegna notkunar bóka þeirra á bókasöfnum.
Sérstök úthlutunarnefnd annast úthlutun. Nefndin er skipuð af menntamálaráðherra til þriggja ára. Hagþenkir – félag höfunda fræðirita og kennslugagna, Rithöfundasamband Íslands og Myndstef tilnefna einn fulltrúa hvert og tveir eru skipaðir án tilnefningar og skal annar vera formaður.