FJÖLÍS er hagsmunasamtök sem koma fram fyrir hönd rétthafa að verkum sem njóta höfundaréttaverndar og nýtt eru með ljósritun eða annarri hliðstæðri eftirgerð rita.
Rithöfundasambandið ráðstafar þeim tekjum sem það innheimtir vegna aðildar sambandsins að samningi FJÖLÍS og Menntamálaráðuneytisins þannig:
Reglur um ráðstöfun greiðslna frá FJÖLÍS 1. Ársreikningar RSÍ skulu bera með sér tekjur frá FJÖLÍS og ráðstöfun þeirra. 2. Tekjum þessum að frádregnum kostnaði skv. góðum reikningsskilavenjum skal ráðstafað með eftirfarandi hætti:
a) Styrkir til rithöfunda án umsókna 40%
b) Ferðastyrkir til rithöfunda eftir umsóknum 20%
c) Varasjóður 25%
d) Orlofshúsasjóður 15%
3. Stjórn RSÍ annast úthlutun styrkja.
4. Við úthlutun styrkja skal hafa hliðsjón af ritstörfum höfunda og útgefnum verkum á tillits til félagsaðildar. Miðað skal við vægi bókmenntagreinar og niðurstöður úr könnunum á ljósritun í skólum eftir því sem unnt er. Fræðirit, kennslugögn og viðlíka ritverk veita ekki rétt til úthlutunar úr sjóðnum enda veitir Hagþenkir - félag höfunda fræðirita og kennslugagna viðtöku því fé sem greitt er fyrir ljósritun á þess háttar efni.
5. Auglýsa skal eftir umsóknum um ferðastyrki a.m.k. einu sinni á ári og skal auglýsing birt í fréttabréfi og á heimasíðu RSÍ.