Stofnaður 1974. Sjóðnum er ætlað að styrkja menningartengsl Íslands og Finnlands. Styrkirnir eru fyrst og fremst veittir einstaklingum, en í sérstökum tilfellum kemur stuðningur við samtök og stofnanir til greina. Umsóknarfrestur rennur út 31. mars ár hvert. Umsóknareyðublöð fást hjá Menntamálaráðuneytinu og þar er einnig tekið við umsóknum. Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar á sænsku, dönsku, finnsku eða norsku. Styrkir til að sækja norrænar eða alþjóðlegar ráðstefnur koma að jafnaðu ekki til greina