Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka var stofnaður hinn 30. janúar 1985 af barnabókahöfundinum Ármanni Kr. Einarssyni og bókaútgáfunni Vöku, sem seinna varð Vaka-Helgafell. Var tilefnið 70 ára afmæli Ármanns. Árið 1988 gerðist Barnavinafélagið Sumargjöf formlegur aðili að sjóðnum og enn síðar Íslandsdeild IBBY.
Megintilgangur sjóðsins er að örva fólk til að skrifa bækur fyrir börn og unglinga og stuðla þannig að auknu framboði úrvalslesefnis fyrir æsku landsins. Sjóðurinn veitir Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir besta handritið sem berst í árlegri samkeppni en hún er öllum opin. Í hlut vinningshafa kemur auk höfundarlauna sem kveðið er á í útgáfusamningi rausnarlegt verðlaunafé. Verðlaunin eru veitt að hausti. Nánar >>